JAKINN.IS
Ávallt ískaldur!
- Fréttir
- Baráttan gegn ólöglegum fiskveiðum
Baráttan gegn ólöglegum fiskveiðum
21.Nóvember 2008
Hafréttarstofnun Íslands og Lagadeild Háskóla Íslands efna til málstofu undir yfirskriftinni Baráttan gegn ólöglegum fiskveiðum nk. miðvikudag, 26. nóvember, kl. 12.30 – 14.00, í Háskóla Íslands, Lögbergi, stofu 101.
Eftir inngang Tómasar H. Heiðar, þjóðréttarfræðings í utanríkisráðuneytinu og forstöðumanns Hafréttarstofnunar Íslands, flytja þau Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri HB Granda hf. og Dr. Rosemary Rayfuse, prófessor í þjóðarétti við Háskólann í New South Wales í Sydney í Ástralíu framsöguerindi. Að erindunum loknum verða fyrirspurnir og umræður.
Dagskrá málstofunnar er eftirfarandi.............
HAFRÉTTARSTOFNUN, LAGADEILD ÍSLANDS, HÁSKÓLA ÍSLANDS
Málstofa
Baráttan gegn ólöglegum fiskveiðum
Háskóla Íslands, Lögbergi, stofu 101,
miðvikudaginn 26. nóvember 2008 kl. 12.30-14.00
Dagskrá:
12.30 Inngangur: Tómas H. Heiðar, þjóðréttarfræðingur í utanríkisráðuneytinu, forstöðumaður Hafréttarstofnunar Íslands.
12.45 Framsöguerindi: Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri HB Granda hf.
13.05 Framsöguerindi: Dr. Rosemary Rayfuse, prófessor í þjóðarétti við Háskólann í New South Wales, Sydney, Ástralíu.
13.35 Fyrirspurnir og umræður.
14.00 Slit.
ALLIR VELKOMNIR
[ Til baka ]