JAKINN.IS
Ávallt ískaldur!
- Fréttir
- Boðskapur dagsins
Boðskapur dagsins
12.Febrúar 2009
Lexía 1:
Maður fer í sturtu
rétt í þann mund, er konan hans er að ljúka sinni og dyrabjallan hringir.
Konan vefur
um sig handklæði og hleypur til dyra.
Hún opnar hurðina og úti stendur Biggi
úr næsta húsi.
Áður en henni tekst að koma upp orði segir Biggi: "Ég gef þér
hundraðþúsund ef þú lætur handklæðið falla".
Hún hugsar sig um smá stund og
lætur svo handklæðið falla og stendur nakin fyrir framan Bigga. Eftir nokkrar
sekúndur lætur Biggi hana fá hundraðþúsund og fer.
Konan vefur
handklæðinu aftur utan um sig og fer aftur inn.
Þegar hún kemur inn á bað
spyr eiginmaðurinn: "Hver var þetta?"
"Þetta var Biggi í næsta húsi", svarar
hún.
"Frábært", segir maðurinn, "nefndi hann eitthvað um þessi hundraðþúsund
sem hann skuldar mér?"
Boðskapur sögunnar:
Ef þú deilir
mikilvægum upplýsingum varðandi lán og áhættu með hluthöfum tímanlega geturðu
verið í aðstöðu til að koma í veg fyrir óþarfa afhjúpun
Lexía
2:
Prestur bauð
nunnu far. Hún settist inn og krosslagði fætur, sem varð til að bera fót
hennar.
Presturinn missti næstum stjórn á bílnum. Eftir að hafa náð
stjórninni aftur, strauk hann hendinni laumulega upp eftir fæti
hennar.
Nunnan sagði þá: "Mundu eftir Orðskviðunum 10:4".
Presturinn dró
að sér hendina, en þegar hann skipti um gír strauk hann hendinni aftur upp eftir
fæti hennar.
Aftur segir nunnan: "Mundu eftir Orðskviðunum
10:4".
Presturinn afsakaði sig og sagði: "Fyrirgefðu systir, holdið er
veikt".
Er þau renna í hlað við klaustrið andvarpar nunnan þunglega og fer
sína leið.
Þegar presturinn
kemur í kirkjuna flettir hann upp Orðskviðunum 10:4. Þar stóð: " Snauður
verður sá, er með hangandi hendi vinnur, en auðs aflar iðin hönd".
Boðskapur sögunnar:
Ef þú ert ekki
vel upplýstur í starfi þínu gætirðu misst af stórkostlegum tækifærum
Lexía
3:
Sölumaður, ritari
og deildarstjóri eru á leið í mat þegar þau finna fornan olíulampa.
Þau nudda lampann
og út kemur töfraandi. Andinn segir: "Ég veiti hverju ykkar eina ósk".
"Ég
fyrst! Ég fyrst!", segir ritarinn. "Ég vil vera á Bahamaeyjum á hraðbát
algerlega áhyggjulaus". Og púff! Hún er horfin.
"Næst ég! Næst
ég!", segir sölumaðurinn. "Ég vil vera á Hawaii að slaka á með einkanuddara og
endalausar birgðir af Pina Colada og ástinni minni". Og púff! Hann er
horfinn.
"Allt í lagi, það er komið að þér", segir andinn við
deildarstjórann.
Deildarstjórinn segir: "Ég vil að þessi tvö verði komin
aftur á skrifstofuna eftir mat".
Boðskapur sögunnar:
Alltaf láta
yfirmanninn tala fyrst.
[ Til baka ]