JAKINN.IS
Ávallt ískaldur!
- Fréttir
- Ljótt er ef satt er.
Ljótt er ef satt er.
15.Febrúar 2009
Landsbankamaðurinn sem var hnepptur í varðhald fyrir 100 milljóna
fjárdráttinn sé farinn að mala á fullu.
Davíð Oddsson hefur þessi
sönnunargögn, þetta er ein af leynibombum hans en hann er með gögnin um
þetta mál og líka mál á fleiri þingmenn. Þess vegna mun hann fagna
utanaðkomandi rannsókn.
Upplýsingar um braskið hans Lúðvíks sem á
Fasteign ehf, Miðklett ehf og Eykt ehf - sem á nánast aðra hverja byggingu í
Borgartúninu, koma úr átt Davíðs, sem gerði slíkt hið sama við Þorgerði
Katrínu á sínum tíma í tengslum við Kaupþing í nóvember sl.
Lúðvík
er ekki sá eini sem fékk sk. "mútu lán" hjá L.Í, lán með helmingi lægri
vöxtum en gengur og gerist. Sif Friðleifs fékk líka 75 milljónir á
vildarkjörum til að kaupa hlutabréf í Decode - sem er líka verið að afskrifa
Þorgils Óttar fékk Keflavíkurflugvöll á 11 milljarða en ásett verð
vallarins eru 50 milljarðar á vildarkjörum frá L.Í en hann hefur aldrei
þurft að borga krónu af því og það er verið að afskrifa það líka.
Ég
hef fengið þessar upplýsingar staðfestar og sannaðar en málið er að um 80 -
90% þingmanna eru blandaðir inn í viðskipti af þessu tagi á einn eða annan
hátt.
Sigurjón Ólafsson er að vinna í þessum afskriftum á vegum
Landsbankans í Apótekaraturninum í Austurstrætí og þá vinnu er hann að vinna
augljóslega í felum með tætarana í fullum gangi.
Og svona í lokin er
Björgvin G. með myntkörfulán upp á einhverja tugi milljóna, borgar á aðra
milljón á mánuði og mér skilst að KPMG hafi verið að vinna að afskriftum
fyrir hann þegar þeir voru stöðvaðir í fyrradag, eitthvað hefur þó Sigurður
G. lögfræðingur Glitnis og mágur Björgvins fengið afskrifað nú þegar.
Hef fengið það staðfest að uppýsingar af þessum toga hefur Davíð Oddsson
á nánast allann þingheim og er því sallarólegur. Þeir þori ekki að
hrófla við honum og láti hann því frekar valta yfir sig á meðan þeir fá
að láta tætarana ganga.
„Lifið lífinu lifandi“ Í skítalykt !!
[ Til baka ]