Skip to: Site menu | Main content

 

Að ljúga eða ljúga ekki!
13.Febrúar 2009

Dag einn, þegar saumakonan sat og vann á árbakkanum, þá missti hún fingurbjörgina sína útí ána. Hún hrópaði upp yfir sig í örvæntingu og henni til mikillar undrunar birtist Drottinn sjálfur og spurði: Hvers vegna grætur þú ? Saumkonan svaraði að fingurbjörgin hennar hefði fallið í vatnið og hún þyrfti á fingurbjörginni að halda svo hún gæti aðstoða bónda sinn við að afla tekna til heimilisins.

Drottinn hvarf ofan í vatnið og kom til baka með gullfingurbjörg. "Er þetta fingurbjörgin þín?" spurði Drottinn. Saumakonan svaraði neitandi og þá hvarf Drottinn aftur í vatnið og kom upp með demantsfingurbjörg. "Er þetta fingurbjörgin þín?" spurði Drottinn en saumkonan neitaði því. Enn hvarf drottinn ofan í vatnið og kom nú upp með silfurfingurbjörg og spurði hvort þetta væri sú rétta og saumakonan jánkaði því. Drottinn var mjög ánægður með sannsögli konunnar og færði henni allar fingurbjargirnar þrjár til eignar að launum, og saumkonan hélt glöð heim á leið.

Nokkru síðar þegar saumakonan var á göngu eftir árbakkanum með eiginmanni sínum, datt hann í ána. Þegar hún hrópaði upp yfir sig í örvæntingu, birtist Drottinn enn á ný og spurði hvers vegna hún gréti? "Æi guð, maðurinn minn datt í ána". Guð stakk sér í ána og kom til baka með Mel Gibson. "Er þetta eiginmaður þinn?" spurði hann. "Já" hrópaði saumakonan.

Drottinn reiddist. "Þú lýgur" sagði hann. "Æ, fyrirgefðu Drottinn, þetta á sér sínar skýringar. Sjáðu til, ef ég hefði sagt nei við Mel Gibsons, hefðir þú næst komið með Tom Cruise og ef ég hefði sagt nei við honum, þá hefir þú komið með eiginmann minn. Ef ég hefði sagt já við honum þá hefðir þú gefið mér þá alla þrjá og þar sem ég er ekki lengur eins hress og ég var þegar ég var yngri hefði ég aldrei getað sinnt þeim öllum þremur. Þess vegna sagði ég já við Mel Gibson.

„Lifið lífinu lifandi“ Án þess að ljúga!

Eldri fréttir
 
2008 © Hjörtur Sævar Steinason | Keyrt á Oliver vefumsjón